9. júní 2009
 

 

 
 

 
 
Um fyrirtækið
Lágmarka

Litaver - Teppabúðin - GLV ehf.

Litaver var upphaflega stofnað af Einari Gunnari Ásgeirssyni í apríl árið 1965 og var í eigu hans til loka ársins 1994.

Litaver og Teppabúðin voru sameinuð undir merki GLV ehf. árið 1994.

GLV ehf. keypti síðan árið 1995 Parkethúsið og Teppaverslun Friðriks Bertelssen sem stofnuð var árið 1934.

Litaver hefur frá stofnun verið staðsett við Grensásveginn, fyrst í húsi nr. 26 og síðar að nr. 18 (Fellsmúla 24). Verslunin hefur verið leiðandi í sölu á málningu, veggfóðri, gólfteppum og gólfdúkum frá stofnun þess.

Teppabúðin var í upphafi staðsett við Reykjarvíkurveg í hafnafirði en fluttist þaðan í Síðumúla, áður en hún flutti að Suðurlandsbraut 26 þar sem áður var Veitingahúsið Sigtún. Teppabúðin hefur verið leiðandi í sölu á öllum gólfefnum, auk þess sem rekin var Teppaverksmiðja að Álafossi til ársins 1996.

Í dag er Litaver og Teppabúðin staðsett að Grensásvegi 18, fyrirtækið skiptist í 3 deildir, gólfefnadeild, málningadeild og verkefnadeild.

Í málningadeild er öll málning, veggfóður, skrautlistar og tengdar vörur helstu vöruflokkum sem áhersla er lögð á, ásamt þekkingu, faglegum ráðleggingum og hagstæðum verðum.

Í gólfefnadeild er megin áherslan lögð á sölu allra helstu gólfefna s.s. gólfteppa, gólfmotta, gólfdúks, ceramic flísa og parkets. Þjónusta, þekking og faglegar ráðleggingar við val á gólfefnum.

Verkefnadeild annast öll samskipti við arkitekta, verktaka, stigahús og önnur stærri verkefni. Tilboðsgerð, sérpantanir, skipulag lagna og útvegun verktaka.

Eigendur fyrirtækisins eru Guðmundur Frímannsson og Pétur Guðmundsson, sem jafnframt er framkvæmdarstjóri þess.
 
Litaver - Teppabúðin Grensásvegi 18, 108 Rvk. 581-2444 og 568-1950